top of page

LOKAVERKEFNI 2016

Á hverju ári gerir 10.bekkur í Háaleitisskóla lokaverkefni áður en hann útskrifast, og á hverju ári er valið ákveðið þema sem verkefnin eru unnin útfrá. Á þessu ári er þemað mannvirki. Möguleiki var að taka fyrir brýr, vegi, hús, hallir eða hvers konar mannvirki sem er. 

Hver hópur velur sér viðfangsefni sem hann vinnur verkefni um í þrjár vikur. Hópurinn aflar sér mikillar þekkingar um viðfangsefnið, býr til prezi eða powerpoint kynningu, býr til leik, málar málverk eða annað listrænt. Hópurinn getur einnig komið upplýsingunum til skila á marga mismunandi vegu s.s. með myndbandi, myndum eða öðru. 

Síðan er haldin generalprufa og tvær kynningar sem kennarar unglingadeildarinnar gefa einkunnir eftir. Allt er metið, og því betur sem verkefnið er unnið, því hærri einkunn fær hópurinn.

 

Að okkar mati hefur þetta verkefni verið hápunktur okkar skólagöngu. Það reynir á marga mismunandi hæfileika ólíkt hefðbundnu bóknámi. Hver dagur færði sínar ólíku ánægjur og við erum ánægðar með vinnuna sem við lögðum á okkur strax frá fyrsta degi.

bottom of page